Um félagið

    Ármenn eru félagsskapur fluguveiðimanna sem berast lítt á og hugsa fyrst og fremst um að eiga gott sambýli við allt sem að veiðunum lýtur. Ármenn eru hvattir til hófsemi í veiði, þeir skilja ekkert eftir nema sporin sín á veiðistað og sýna öðru fólki virðingu hvar í sveit sem það er sett.


    Félagið var stofnað 28. febrúar 1973 og er ennþá eina fluguveiðifélag landsins. Þeir sem kaupa leyfi á vegum Ármanna, hvort heldur það eru félagsmenn eða aðrir, skuldbinda sig því til að veiða eingöngu með flugu á viðkomandi svæðum.