Söluvefurinn leyfi.is er samstarfsverkefni þriggja stangaveiðifélaga; Ármanna, Stangaveiðifélags Hafnarfjarðar og
Stangaveiðifélags Selfoss.
Vefurinn var settur á laggirnar í maí 2008 til að selja þau veiðileyfi sem eftir standa
þegar úthlutun til félagsmanna er lokið. Einnig eru í boði veiðileyfi frá öðrum
stangaveiðifélögum sem og ýmsum öðrum aðilum sem bjóða uppá stangaveiði.
Það er von okkar að veiðimenn taki þessari nýbreytni í stangaveiðileyfum fagnandi
og eigi við okkur gott samstarf.
Hægt er að fá nánari upplýsingar með því að senda póst á leyfi@leyfi.is