Lausir dagar
VOLI.
Svæðið er mjög stórt eða með Bitrulæk a.m.k. 12-14 km. Veiðikort er af svæðinu með góðum vegamerkingum og bæjarnöfnum auk merktra veiðistaða. Svæðið er í nágrenni Selfoss eða innan við 10. mín. akstur hvort sem farið er að efri hluta svæðisins ( t.d. veiðihúsi ) eða að neðri veiðimörkum sem eru gamla brúin við Bár. Á þessu svæði er staðbundinn urriði, staðbundin bleikja, sjóbirtingur, sjóbleikja, lax og jafnvel stöku áll. Má segja að von sé í ágæta silungsveiði frá vori og fram til loka á haustin á Volasvæðnu
Staðsetning: Skammt austan við Selfoss Veiðisvæði: Frá brú við Þingborg að gömlu brúnni við Bár, auk Bitrulækjar. Sjá nánar á veiðikorti.
Stangafjöldi: 2 Tímabil: 1/6 - 20/10 Leyfilegt agn: Frá 1. júní til 9. október má veiða á flugu, maðk og spón. Eingöngu er heimilt að veiða á flugu eftir 10. október og ber að sleppa öllum sjóbirtingi á þessum tíma.
Góðar flugur: Bleik og blá, Heimasætan, Black Ghost, Peacock, Black Gnat og Krókurinn.
Veiðihús: Veiðihús er á svæðinu og stendur það við gömlu brúna við Vola. Í húsinu er svefnaðstaða fyrir 4-6 manns, rennandi vatn, wc, raflýsing ( sólarrafhl.), gashitun, gashellur, Kolagrill o.fl. Veiðimenn skulu rýma húsið fyrir kl. 19.00 að kvöldi brottfarardags til að gefa þeim sem á eftir koma kost á að koma sér fyrir áður en veiði hefst kl. 20.00. Veiðimönnum ber að þrífa húsið vandlega fyrir brottför og fjarlægja rusl. Reglur: Tvær stangir eru leyfðar á svæðinu og eru þær seldar saman eða í sitthvoru lagi.  Daglegur veiðitími er frá 08.00 - 20.00 samfellt. Þetta veiðileyfi gildir fyrir keyptan stngarfjölda, sjá veiðileyfi. Öllum sjóbirtingi ber að sleppa eftir 10. október. Nýtt: Kvóti er á veiðinni frá 1. júní til 20. október. Leyfilegt er að veiða fimm fiska á dag á stöng. Hert veiðieftirlit verður á svæðinu
Veiðikort:
Veiðibók: Liggur frammi í veiðihúsi, veiðimönnum er skylt að skrá allan afla. Veiðileyfi: Félagar í SVFS fá úthlutað, eftir það eru öll leyfi seld á leyfi.is
Veiðivörður Almar Sigurðsson Lambastöðum 777-0705 Umsjónarmenn Steingrímur Ólafsson 897-3447 Jón Birgir Kristjánsson 695-9273

Leyfi í boði