Lausir dagar
Tunga/Bár
Vatnasvæðið er um 11 km langt eða frá gömlu brúnni við Bár í nágrenni Selfoss að brúnni við veiðihúsið í Tungu skammt austan Stokkseyrar. Gott veiðikort er af svæðinu með vegamerkingum og bæjarnöfnum svo vel má átta sig á aðkomu að svæðinu og einstaka veiðistöðum. Á bakhlið veiðikortsins er að finna greinargóða lýsingu á öllum helstu veiðistöðum á svæðinu.Fluguveiði er vaxandi á þessu svæði sem annarsstaðar í læknum á kostnað maðksins sem þó gefur oft góðan afla. Sjóbirtingur er aðall svæðisins en hann er kominn á svæðið fljótlega eftir að hans verður vart í ósnum. Þá fást venjulega nokkrir laxar á hverju sumri. Svæðið gefur meiri afla en skýrslur sýna því ekki er veiðibók á svæðinu en ekki næst í nema hluta veiðimanna til að fá upplýsingar um veiði.
Staðsetning: Skammt austan við Selfoss Veiðisvæði: Frá gömlu brúnni við Bár að brúnni við veiðihúsið í Tungu, sjá nánar á veiðikorti
Stangafjöldi: 2 Tímabil: 1/6 - 20/10 Leyfilegt agn: Frá 1. júní til 9. október má veiða á flugu, maðk og spón. Eingöngu er heimilt að veiða á flugu eftir 10. október og ber að sleppa öllum sjóbirtingi á þessum tíma. Góðar flugur: Bleik og blá, Heimasætan, Black Ghost, Peacock, Black Gnat og Krókurinn.
Veiðihús: Ekkert veiðihús fylgir svæðinu. En veiðimönnum er bent á Gistiheimilið Lambastaðir, Lambastöðum - www.lambastadir.is Sími: 777 0705
Reglur: Tvær stangir eru leyfðar á svæðinu og eru þær seldar í sitthvoru lagi. Daglegur veiðitími er frá 08.00 - 20.00. Veiðileyfi þetta gildir fyrir keyptann stangarfjölda. Öllum sjóbirtingi ber að sleppa eftir 10. október. Nýtt: Kvóti er á veiðinni frá 1. júní til 20. október. Leyfilegt er að veiða fimm fiska á dag á stöng. Eftir það má veiða og sleppa. ATH eftir 10. október ber að sleppa öllum sjóbirtingi. Hert veiðieftirlit verður á svæðinu
Veiðikort:
Veiðibók: Er við brúnna hjá Hæringsstöðum, veiðimönnum er skylt að skrá allan afla. Veiðileyfi: Félagar í SVFS fá úthlutað, eftir það eru öll leyfi seld á leyfi.is
Umsjónarmenn / veiðiverðir: Steingrímur Ólafsson 897-3447 Jón Birgir Kristjansson 695-9273

Leyfi í boði