Um félagið
    Stangaveiðifélag Hafnarfjarðar SVH er félag með langa hefð, en félagið var stofnað í kringum veiði í Hlíðarvatni í desember árið 1951. Fljótlega hófst einnig fiskirækt i Kleifarvatni og seinna sömuleiðis í Djúpavatni. Innan félagsins eru tæplega þrjúhundruð virkir félagar og heldur félagið uppi öflugu vetrarstarfi einu sinni í viku frá  janúarbyrjun og fram í lok apríl. Á þessu tímabili stendur félagið fyrir kastnámskeiðum og hnýtingarnámskeiðum í samvinnu við Námsflokka Hafnarfjarðar og Kastklúbb Reykjavíkur.

    Opið hús er á hverju fimmtudagskvöldi og  einu sinni til tvisvar í mánuði koma gestir meðfyrirlestur og fræðslu um veiðitengd málefni. Þess á milli  hittast félagartil að spjalla yfir kaffibolla og hnýta flugur saman. Allir eru velkomnir á opin hús.

    Þá hefur félagið haldið úti unglingastarfi fyrir börn og unglingar á aldrinum 11 – 16 ára í nokkur ár, krakkarnir koma 8 – 10  skipti saman, læra hnúta, hnýta flugur, horfa á veiðivídeo og fara yfir búnaðinn og enda svo í veiðiferð þar sem gist er eina nótt. Þetta starf er ókeypis fyrir krakkana.  Annars  leggur félagið áherslu á að bjóða félagsmönnum fjölskylduvæn veiðisvæði á hagstæðu verði, og hvetur veiðimenn til að ganga vel um veiðisvæði og bera virðingu fyrir bráðinni.   

    Stangaveiðifélag Hafnarfjarðar
    Flatahrauni 29
    220 Hafnarfjörður
    S:565 4020
    Heimasíða www.svh.is
    Netfang: stjorn@svh.is