Lausir dagar
Upplýsingar um svæðið: Veiðistaðurinn. Hólsá – Vesturbakki er þekkt 2 stanga veiðisvæði neðst í vatnakerfi Rangánna. Frábær veiðivon á mjög hagstæðu verði. Allt agn leyft. Veiði síðastliðinna ára hefur verið á bilinu 250 – 600 laxar.  Bestu veiðistaðir s.l. ára hafa verið bakkinn fyrir ofan efsta bílastæðið, að svæðamörkum að ofan. Hornið sem skagar út í ánna nokkur hundruð metrum þar fyrir neðan og síðan þar sem raflínan liggur yfir ánna, þar töluvert fyrir neðan. Veiðistaðir eru þó síbreytilegir milli ára og veiðivon er víða enda gengur óhemju mikið af fiski um svæðið. Staðsetning: Suðurland um 85 km frá Reykjavík. Ekið er um niður Þykkvabæjarveg um 1 km áður en komið er á Hellu og honum fylgt alveg til Þykkvabæjar. Þaðan ekið í austur að bænum Borg, og þar niður að ánni á slóða við hliðina á hlöðunni. Nokkuð gott aðgengi, fólksbílafært víða, en full þörf á 4wd bílum ef menn ætla sér að fara niður í ós. Veiðisvæði: Nær frá svæðamörkum neðan við veiðistaðinn Borg (svæðamörk eru vel merkt) og niður að ósi Hólsár Stangafjöldi: 2 stangir sem ávallt eru seldar saman. Veiðitímabil: 20. júní til 20. Október.  Veiðitími: 20. júní – 31. ágúst 07:00 – 13:00 og 15:00 – 21:00; 01. september – 30. september 07:00 – 13:00 og 15:00 – 21:00; 1. október – 20. október 08:00 – 20:00 Leyfilegt agn: Fluga, maðkur, spúnn Góðar flugur: Sunray, Bismó, Snælda Veiðihús: Ekkert veiðihús fylgir svæðinu, en mikið framboð er af allskyns gistimöguleikum á svæðinu. Veiðibók er í aðstöðuhúsinu við veiðihúsið í Ytri Rangá, veiðimönnum er skylt að skrá allan afla þar samdægurs.

Leyfi í boði